Ársskýrsla Svæðisdeildar Austurlands 2025
Þann 24. maí 2025 útskrifuðust níu sjúkraliðar frá Verkmenntaskóla Austurlands og fengu þeir að gjöf sjúkraliðalykilinn og rós. Við óskum þeim til hamingju og velfarnaðar í starfi.

Stjórn Austurlandsdeildar hóf starfsárið 2025 á að hittast og skipuleggja vorfund sem haldinn var 27. maí 2025 á Berjaya hóteli á Egilsstöðum. Á fundinn mættu 17 sjúkraliðar. Ester Rósa var kosin fundarstjóri og Soffía Benjamínsdóttir var kosin ritari fundarins. Við kynntum fagnám sjúkraliða og voru tveir sjúkraliðar, sem eru í þessu námi, á fundinum. Við fórum einnig yfir þau námskeið sem í boði eru. Einnig ræddum við um samskipti og virðingu bæði við sjúklinga og aðstandendur og síðan ræddum við allt sem okkur datt í hug í sambandi við breytingarskeiðið.
Ásthildur Garðarsdóttir hélt fyrirlestur um Leið að bættri líðan – Frá ótta til hugrekkis. Var þetta mjög áhugaverður fyrirlestur. Við kynntum Facebook, Tik Tok og Instagram Sjúkraliðafélagsins fyrir þeim sem voru á fundinum og hvöttum við sjúkraliðana til að fylgjast með og lesa það sem kemur fram þar. Á fundinum var boðið uppá kjúklingasúpu frá hótelinu
Stjórn deildarinna hélt svo tvo stjórnarfundi til að undirbúa fyrir aðalfund sem haldinn var 30. október 2025 í Giljasal HSA á Egilsstöðum. Á fundinn mættu 18 Sjúkraliðar. Ester Rósa var kosin fundarstjóri og Soffía Benjamínsdóttir ritari. Var farið í að undirbúa fyrir það að stofna kennitölu og reikning fyrir Austurlandsdeildina sem hefur verið reynt síðustu ár.
Kosinn var fulltrúi til að fara á 35. þing SLFI sem haldinn verður í april 2026 og var formaður Svæðisdeilar Austurlands, Þorbjörg Sigurbjörnsdóttir, kosin til þess og Soffía Benjamínsdóttir til vara. Lögð var fram tilaga að fjárhagsáætlun deildarinnar og var hún samþykkt.
Þorbjörg hvatti sjúkraliða til að sækja þau námskeið sem eru í boði hverju sinni. HSA er að bjóða uppá frí námskeið og einnig eru mörg skemmtileg og fróðleg námskeið í boði Framvegis.
Á fundinum var Jóna Bergrós Gunnlaugsdóttir með kynningu á verkefninu Lífslokameðferð sem hún ásamt Önnu Lísu Sigfúsdóttur, Gunnþórunni Heidenreich og Kolbrúnu Stellu Gestsdóttur gerðu í Diplómanáminu Sjúkraliða í HA.
Veitingar voru í boði LÚNA veitingar.

Stjórn Svæðisdeildar Austurlands, Þorbjörg Sigurbjörnsdóttir, Ester Rósa Halldórsdóttir, Júlíanna Þórbjörg Ólafsdóttir, Gunnþórunn Heidenreich, á myndina vantar Soffíu Benjamínsdóttur
Við í stjórn Austurlandsdeildar hlökkum til komandi árs og þökkum fyrir okkur.
Fyrir hönd stjórnar Svæðisdeildar Austurlands,
Þorbjörg Sigurbjörnsdóttir, formaður

