Ársskýrsla Svæðisdeilar Suðurlands 2025
Aðalfundur fór fram 20. nóvember 2024 í Tryggvaskála á Selfossi. Fundarstjóri var kosinn, Lára Kristjánsdóttir. Ekki urðu breytingar á stjórn en áfram gáfu kost á sér Katrín Alexandra Helgudóttir og Dögg Jónsdóttir og fengu kosningu.

Í kjörstjórn héldu áfram Dagný Ómarsdóttir og Jóhanna F. Sæmundsdóttir. Í skemmtinefnd til að brydda upp á skemmtun á aðalfundi var Heilsugæslan tilnefnd. Til setu á fultrúarþingið í vor voru tilnefndar Helga S. Sveinsdóttir og Karol Axelsdóttir. Það var samþykkt með 151 félagsmenn á bak við sig. Ákveðið var að stjórnin héldi utan um haustferð deildarinnar sem farin verður í tilefni afmælisins og fengu til liðs við sig fólk eftir því sem við átti. Að auki var búið að undirbúa ferð til Berlínar sem síðan var farið í síðasta vor og hafði Margrét Auður Óskarsdóttir veg og vanda af undirbúningnum, kom hún upp og kynnti fyrirkomulagið. Eftir léttar veitingar var fyrirlestur um að efla sig og elta draumana „Veldu þig“ sem Ingunn og Þórdís lífsþjálfarar fluttu. Góður fundur og fróðlegur fyrirlestur.
Farið var í haustferð 17. október 2024. Ekki var mikil þátttaka en mjög skemmtileg ferð. Heilsustofnun NLFI í Hveragerði var skoðuð, gengið þar niður að Steini og lesin ljóð og boðið upp á snafs, Hespuhúsið heimsótt og að lokum endað í miðbæ Selfoss og snætt í Tryggvaskála. Frábærar móttökur á öllum stöðum og mjög fróðlegt.
Formaður sótti BSRB þing í október 2024 en það er haldið á þriggja ára fresti. Þar fer fram mikil umræða í málstofum og er stefna samtakanna mörkuð í framhaldinu. Haldnir voru nokkrir stjórnarfundir en mikil vinna fólst í að skipuleggja og halda utan um tvær ferðir sem farið var í vegna 45 ára afmælis deildarinnar. 24 sjúkraliðar fóru í námsferð til Berlínar í lok apríl. Þar héldu Berlínurnar, hópur fararstjóra, utan um skemmtilegt skipulag ferðarinnar. Farið var í heimsókn til Alzheimer samtakanna, á hjúkrunarheimili, til íslenska sendiráðsins og hlustað á fróðlega fyrirlestra. Mæli heilshugar með fararstjórn Berlínanna.
Sjúkraliðadagurinn var haldinn hátíðilegur 5. maí í Hörpunni. Um 300 sjúkraliðar sóttu ráðstefnuna af öllu landinu og var vel mætt af Suðurlandinu. Skemmtilegt var að daginn bar upp á afmælisdag Suðurlandsdeildar en hún var stofnuð 5. maí 1980 en hét þá Árnessýsludeild SLFI.
Farið var í haustferð inn á Þórsmerkursvæðið. Um 30 sjúkraliðar fóru inn í Bása og nutu góðrar útiveru og samveru í frábærri veðursæld. Ferðin endaði svo á borðhaldi á Strakta á Hellu.
Trúnaðarmannaráðstefnan var haldin 20. september 2024 á Hilton hóteli. Góður fundur og mikilvægt að hóa trúnaðarmönnum saman, fá fræðslu og upplýsingar um málefni félagsins. Góð hópavinna fór þar einnig fram þar sem unnin var hugmyndavinna tengd starfi trúnaðarmanna.
Í september 2024 tóku nokkrar úr Suðurlandsdeildinni á móti stórum hópi frá Svæðisdeild höfuðborgarinnar. Skoðuðu þau Móberg, Ljósheima og Fossheima. Gaman var að hitta svo marga sjúkraliða.
Á Evrópudaginn minna sjúkraliðar á sig og var misjafnt með hvaða hætti það fór fram milli vinnustaða. Félagið útvegar ýmsan varning sem sumsstaðar var dreift ásamt fræðslu og upplýsingum um störf sjúkraliða.
Engar útskriftir voru frá FSu á starfsárinu en verða væntanlega núna í desember.
Við tókum þátt í 1. maí hátíðarhöldunum. Gengum fylktu liði eftir Austurveginum og héldum fund á Hótel Selfossi.
Ég þakka trúnaðarmönnum fyrir þeirra ómetanlegu störf og vera augu og eyru félagsins. Færi líka þakkir til þeirra sem tóku þátt í fjáröflunarferð til Reykjavíkur og tóku vorþrif í orlofsíbúðum félagsins. Þetta fer inn á einkareikning deildarinnar og er ekki til rekstrar hennar heldur nýtist til ferða deildarinnar og annað sem upp kemur. Alltaf er hægt að leita til skrifstofunnar og fá liðsinni þar.
Fyrir hönd stjórnar,
Helga S. Sveinsdóttir, formaður Svæðisdeildar Suðurlands





