Ársskýrsla Svæðisdeildar Suðurnesja 2025
Svæðisdeild Suðurnesja starfaði líkt og undanfarin ár af krafti að því að efla fagleg réttindi, samstöðu og sýnileika sjúkraliða á svæðinu. Starfið á árinu 2025 einkenndist af samheldni, metnaði og vilja til að bæta starfsskilyrði félagsmanna.
-1000x539.jpg&w=3840&q=75)
Starfsemi ársins
Á árinu voru haldnir þrír fundir þar sem málefni deildarinnar voru rædd, ásamt því að fulltrúar deildarinnar tóku þátt í störfum innan Sjúkraliðafélags Íslands og samstarfs við aðrar deildir.
Helstu verkefni ársins voru m.a.:
- Þáttaka í Sjúkraliðadeginum í Hörpunnni 5.maí
- Hittumst á Brons í pílu og léttan mat.
- Farið var í jóga Nitra í október
- Aðalfundur 26.nóvember
Fjármál
Fjármál deildarinnar voru í góðu jafnvægi á árinu. Tekjur fengust aðallega í gegnum framlag frá Sjúkraliðafélagi Íslands, og útgjöld fóru í hefðbundinn rekstur, fræðslu og viðburði.
Aðalfundur
Aðalfundurinn var haldinn á Hótel Park inn í Keflavík 26.nóvember Þar sem mæting var ágæt og fram komu margar skemmtilegar og áhugaverðar hugmyndir fyrir árið 2026. Stjórnin breyttist þar sem tvær gengu úr stjórn þær Guðbjörg Ingibergsdóttir og Sigrún Stefánsdóttir og viljum við þakka þeim samstarfið á liðnum árum. Inn komu í þeirra stað þær Erna Rós Agnarsdóttir og Guðlaug Metúsalemsdóttir
Stjórn
Steinunn Bára Þorgilsdóttir formaður, Matthildur Ólöf Guðmundsdóttir, Steinunn Dagný Ingvarsdóttir, Erna Rós Agnarsdóttir og Guðlaug Metúsalemsdóttir
Markmið og framtíðarsýn
Fram undan er áframhaldandi vinna við að efla faglegt starf sjúkraliða á svæðinu, hvetja til þátttöku og tryggja að rödd okkar heyrist í umræðum um heilbrigðismál.
Við stefnum að því að halda áfram með t.d. fræðslukvöld, samverur, og kynningar á því sem í boði er á Suðurnesjum
Stjórn Suðurnesjadeildar vill þakka öllum félagsmönnum fyrir þátttöku og stuðning á árinu 2025. Sérstakar þakkir fá þeir sem tóku þátt í verkefnum deildarinnar og stuðluðu að jákvæðu og faglegu starfi.
Fyrir hönd stjórnar,
Steinunn Bára Þorgilsdóttir, formaður Svæðisdeildar Suðurnesja