Ársskýrsla Svæðisdeildar höfuðborgarsvæðisins 2025
Stjórnina skipa þau Magnús Einarsson Smith, formaður, Lára María Valgerðardóttir, varaformaður, Elísa Finnsdóttir, Kristbjörg Sóley Hauksdóttir, Ásta Marteinsdóttir og Sif Sigmundsdóttir.

Haldnir voru tveir stjórnarfundir og þrír viðburðir á árinu.
Eftirfarandi viðburðir voru haldnir árið 2025:
Aðstoð við skattframtal þar sem þar sem Sigurbjörg Kristmundsdóttir, sjúkraliði og viðskiptafræðingur aðstoðaði sjúkraliða við gerð skattframtals.
Hinn 1. maí var fjölskylduskemmtun vegna kröfugöngu á baráttudegi verkalýðsins, boðið var upp á grillaða hamborgara og meðlæti úr grillvagni frá Hamborgarabúllu Tómasar ásamt drykkjum. Þátttaka fór fram úr björtustu vonum. Í framhaldinu var haldið á Skólavörðuholt í kröfugöngu.
Fimmtudaginn 18. september 2025 var farið í haustferð á Akranes. Mæting var við Golfklúbb Mosfellsbæjar og var farið þaðan í rútu á Akranes. Byrjað var á fataversluninni Nínu, þá var hjúkrunarheimilið Höfði og Heilbrigðisstofnun Vesturlands heimsótt, að lokum var svo farið á byggðasafnið í Görðum, leirlistasmiðjuna Leirbakaríið og KRÓSK fatahönnun. Að lokum var ekið til baka í Mosfellsbæ þar sem boðið var upp á glæsilegan þriggja rétta matseðil ásamt bingói með veglegum vinningum.
Það er fastur liður að fulltrúar frá Svæðisdeild höfuðborgarsvæðisins séu við útskriftir sjúkraliðanema. Fulltrúar félagsins afhenta útskriftarefni, rauða rós, upplýsingar um Sjúkraliðafélagið ásamt skráningareyðublaði í félagið, vaktabók og hálsband fyrir starfsmannaskírteini. Á starfssvæðinu eru Fjölbrautaskólinn við Ármúla og Fjölbrautaskólinn í Breiðholti. Samtals útskrifuðust 94 sjúkraliðar frá báðum skólunum árið 2025 sem er mikið fagnaðarefni.
Fyrir hönd stjórnar Svæðisdeildar höfuðborgarsvæðisins,
Magnús Einarsson Smith, formaður.