Beint í efni
30. janúar 2026

Í stjórn Svæðisdeildar Vestfjarða sitja nú, Linda Björk Wolff Óskarsdóttir, formaður, Anna Marý Jónasdóttir, varaformaður, Marý Karlsdóttir, gjaldkeri, Þórdís Guðmundsdóttir, ritari, Ingibjörg Heba Halldórsdóttir, meðstjórnandi 

Starf deildarinnar á árinu var að venju fjölbreytt. Formaður fór á félagsstjórnarfundi og trúnaðarmannaráðsfund, sjúkraliðar mættu, ásamt félögum í öðrum stéttarfélögum, í kröfugöngu á Ísafirði á Verkalýðsdaginn 1.maí.
Sjúkraliðadagurinn var haldinn 5. maí 2025, og mættu nokkrir sjúkraliðar af Vestfjörðum og höfðu mjög gaman af. Vel heppnað málþing og fróðlegar umræður.

Á aðalfundinn 13. september mættu 14 sjúkraliðar í Skúrinn á Húsinu. Boðið var upp á  sjávaréttasúpu, brauð og kaffi og franska súkkulaðiköku. Á aðalfundi sagði Sólveig Guðnadóttir af sér sem varaformaður og Anna Marý Jónasdóttir var kosin í hennar stað. Einnig var rætt um fyrirhugaða námsferð til Noregs árið 2026. Skipulagsnefnd sagði frá skipulagi ferðarinnar í grófum dráttum.

Í október fór félagsstjórnin til Belfast, þar sem haldin var góður fundur með formönnum frá öllum svæðisdeildum og stjórn SLFÍ. Gist var á mjög góðu hóteli sem var staðsett nálægt verslunargötu og tíminn vel nýttur í að versla og skoða staðinn. Hópurinn fór á eina sýningu sem tengdist heilsu og þar var margt skemmtilegt að sjá og hlustað á fræðslu tengt því. Á Evrópudegi sjúkraliða 26. nóvember bauð deildin upp á veglega köku fyrir alla á HVEST í hádeginu í tilefni dagsins.

  • Frá aðalfundi Svæðisdeildar Vestfjarða 2025

Litlu jólin voru haldinn 11. desember í Rögnvaldarsal í Edinborgarhúsinu. Boðið var uppá smárétti frá Ellu Óla og heitt jólaglögg. Pakkaleikur og skemmtileg stund sem 17 konur áttu saman.

Engin sjúkraliði útskrifaðist frá Menntaskólanum á Ísafirði á vorönn, en fjórir útskrifuðust við hátíðlega athöfn í kirkjunni þann 19. desember.

Stjórnin þakkar fyrir frábært ár og stefnir á að 2026 verði enn betra með námskeiðum og skemmtilegri samveru.

Með bestu kveðjum,
stjórn Vestfjarðardeildar