Svæðisdeild Vestmannaeyja
Formaður:
Ásdís Emilía Björgvinsdóttir, netfang: amiliab@simnet.is
Meðstjórnendur:
Anna Guðný Laxdal Magnúsdóttir
Bjartey Ósk Stefánsdóttir
Donna Ýr Kristinsdóttir
Rakel Ýr Eydal Ívarsdóttir


Trúnaðarmenn
Trúnaðarmaður er tengiliður milli félagsfólks Sjúkraliðafélagsins og stjórnenda stofnana og miðlar upplýsingum um kjara- og réttindamál til félagsfólks. Trúnaðarmannaráð er ráðgefandi fyrir starfsfólk kjara- og réttindasviðs og samninganefnd félagsins við stefnumótun í kjaramálum og kjarasamningagerð.

Ársskýrsla Svæðisdeildar Vestmannaeyja 2025
Aðalfundur deildarinnar var haldinn 30. október síðastliðinn í fyrrum samkomusal KFUM&K að Vestmannabraut 5. Þessi salur er núna í eigu Ernu Þórsdóttur sjúkraliða og eiginmanns hennar. Við vorum í þessum sama sal á jólafundinum okkar í fyrra og það var samdóma álit allra, að það væri eitthvað virkilega gott í þessum sal og áttum við allar mjög notalega kvöldstund.