Beint í efni

Ársskýrsla Svæðisdeildar Vesturlands 2025

Síðasti aðalfundur Svæðisdeildar Vesturlands var haldinn 25. nóvember 2024. Fundurinn var haldinn á Stekkjarholti 8 á Akranesi heima hjá fráfarandi formanni Ingu Lilju Sigmarsdóttur.

9. janúar 2026

Ágætis mæting var á fundinn - á bilinu 10-15 mættu á fundinn og var skemmtileg stemning. Fundurinn var góður og góðar samræður áttu sér stað, var boðið upp á súpu, brauð og kökur.


Aðalfundur fyrir árið 2025 er haldinn þann 23. okt 2025 á Hraunsnefi 311 í Borgarnesi. Var ákveðið að reyna að hafa fundinn miðlægis á Vesturlandi til að sem flestir gætu hugsað sér að reyna að mæta. Í boði var Hamborgari Hraunsnefs og kaffi á eftir og konfekt og smá nammi.


Létt skemmtun verður á staðnum og vonast til að sem flestir sjúkraliðar á Vesturlandi myndu mæta.
Þann 13/10 voru búnar að skrá sig 35 sjúkraliðar sem er alveg frábær mæting. Mættir á fundinn voru um 42 sjúkraliðar.

Á árinu höfum við í stjórninni hist um 5 sinnum og erum við búnar að henda inn skemmtilegum hugmyndum fyrir næsta ár.

Ætluðum í sumar að reyna að gera eitthvað skemmtilegt en vegna sumarleyfa og rigningarveðurs náðist aldrei að koma því í framkvæmd.

Það sem framundan er á dagskrá eru heimsóknir á aðrar starfsstöðvar, námskeið í t.d. matargerð/ föndri o.fl. jóla hangikjöts hittingur, utanlandsferðar undirbúningur fyrir árið 2026 er komin af stað fyrir sjúkraliða, mögulegt keilumót innan deildar eða á milli deilda.

Deildir sjúkraliða eru farnar að tala saman um að sameina vor- og haustferðir til að reyna að auka stemningu.

Við í deildinni ætlum að reyna að fá sjúkraliða til að vera virka í félaginu og hvetja aðra til að koma í skemmtilega hittinga á árinu, þannig höldum við félaginu áfram gangandi með að vera áhugasamar og hvetjandi.

Við sjúkraliðar erum með sterkt félag á bakvið okkur sem eru með fullan vilja til að aðstoða okkur við að vera duglegar að hittast, fræðast, ferðast og hafa það gaman saman og viljum við endilega fá landsbyggðina með okkur eins og hægt er.

Hugmyndir eru uppi um skemmtilegan hitting þar sem við fáum trúbador. Við erum komin með velyrði um að fá afnot af félagsaðstöðu sjúkraliðafélagsins þegar við viljum hittast og hafa einhverja skemmtilega hittinga/eða viðburði. Þar þurfum við ekki að borga beina leigu fyrir salinn og fáum við manneskju sem sér um eldhúsið á slíkum hittingum með.

Höfum við verið að velta upp hugmyndum um hitting í félagsaðstöðunni með að mynda kór sjúkraliða / halda svona sönghitting - prjónakvöld, læra að hekla / námskeið í matreiðslu/ búa til koktaila  / föndur/kransagerð og fleira. Við þurfum að vera duglegar að nýta sjóðina okkar, þó svo að við leggjum út fyrir námskeiðum þá endurgreiðir félagið okkur það á hverjum fimmtudegi þegar við erum búnar að kaupa okkur námskeið og senda inn reikninginn á SLFÍ.

Sameiginlega höfum við verið að skapa hvetjandi og jákvætt andrúmsloft þar sem allar gátu lagt sitt af mörkum og voru duglegar að koma með nýjar hugmyndir.

Stjórn Svæðisdeildar Vesturlands skipa:
Formaður: Kristrún Kristinsdóttir

Meðstjórnendur:
Guðrún Drífa Halldórsdóttir
Erna Björk Magnúsdóttir
Fanney Reynisdóttir
Gyða Agnardóttir

Fundir svæðisdeildarinnar:
Fundir stjórnar hafa verið um 5 á árinu, bæði heima hjá formanni og á Galito á Akranesi.
Farið hefur verið í að undirbúa viðburði, hittinga, heimsókn á nokkra staði á Vesturland, námskeið og fleira.


Félagsstjórnafundir á tímabilinu:

Félagsstjórnarfundir voru haldnir reglulega í ár, 10. febrúar í félagsaðstöðunni, 14. apríl 2025.

Baráttudagur verkalýðsins 1. mai mætti formaður með fána og góða skapið, þekkti mjög fáa í göngunni en skemmti sér vel.

 Sjúkraliðadagurinn var haldinn 5. mai 2025 í Hörpu og var frábærlega mætt á þann fund sem fór vel fram og skemmtilegur dagur.

Félagsstjórn fór til Belfast í Írlandi 16-19. okt 2025 síðastliðinn og fór formaður stjórnar með í þessa ferð með öðrum formönnum sjúkraliðafélagsins og Söndru B. Franks formanni SLFÍ.

Fundur á teams var haldinn 15. apríl 2025.


Mjög gott var að lesa föstudagspistla formanns og mögulega dreifa þeim á samfélagsmiðum eins og hægt var.

Trúnaðarmannaráðsfundur:

Trúnaðarmannaráðsfundur var þann 2. október í félagsaðstöðunni okkar. Góður fundur þar sem farið var yfir vinnu stefnumótunar og framtíðarsýn, fréttir af starfinu og verkefnum í vinnslu ásamt fræðslu.
Síðasti trúnaðarmannaráðsfundur far haldinn 20. september 2024 á Hilton hóteli. Þar voru kjarasamningar og vinna sem þeim tengdist í brennidepli ásamt fræðslu um réttindi sjúkraliða og fleira.
Vel fjölmennt var á báðum fundum og gaman að sjá hversu stóran og öflugan hóp trúnaðarmanna við eigum í okkar röðum.


Útskriftir nemanda úr FVA:

17. desember 2024 útskrifuðust tveir sjúkraliðar. Fór formaður í FVA og afhenti útskriftarnemum rós og skjal þar sem þeim var óskað til hamingju með árangurinn og þeim boðið hjartanlega velkomna í félagið og þeim óskað velfarnaðar í starfi.

Í vor 2025 var enginn sjúkraliði sem útskrifaðist frá FVA.

Í desember 2025 útskrifaðist enginn sjúkraliði frá FVA.

Fulltrúaþing SLFÍ 29. apríl 2025

Fulltrúaþing var haldið 29. apríl 2025.
Formaður deildarinnar Kristrún og Fanney fóru saman á fulltrúaþing sjúkraliða. Á fulltrúaþinginu var farið yfir skýrslu stjórnar, reikninga og sjóði, félagsgjöld, fjárhagsáætlun, lagabreytingar, starfsreglur, kosningar í nefndir og stefnumótavinna kynnt. Farið yfir stöðu kjarasamninga.

Evrópudagur:sjúkraliða

26. nóvember er Evrópudagur sjúkraliða. Sumir vinnustaðir halda þennan dag hátíðlegan með að panta köku fyrir deildina við mikinn fögnuð sjúkraliða.
26. nóvember er haldinn hátíðlegur í öllum aðildarlöndum EPN – The European Council of Practical Nurses – en Sjúkraliðafélag Íslands er eitt af stoltum aðildarfélögum þess.
Markmið dagsins er að vekja athygli á störfum sjúkraliða hvar sem þeir starfa og minna á nauðsyn slíkrar fagstéttar innan heilbrigðiskerfisins sem einnar af undirstöðum þess. Sjúkraliðar starfa á öllum heilbrigðisstofnunum landsins og hjúkrunardeildum sjúkrahúsa auk fjölda þjónustudeilda, hjúkrunarheimila, heimahjúkrunar, félagsþjónustu, læknastofa og skóla.

26. september fór formaður í FVA og hitti sjúkraliða að beiðni skólans, ræddi við nemendur um upplifun formanns fyrir og eftir námið sem sjúkraliða á nokkrum deildum og ræddi um möguleika sjúkraliða eftir nám.

Sjúkraliðar á Akranesi héldu litlu jól á Akranesi 13/12 í matsal HVE þar sem þeir borðuðu saman hangikjöt og fleira góðgæti og lásu og hlustuðu á skemmtilegar jólasögur saman.

18. nóvember 2025 fór stjórnin öll í smá leiðangur og heimsótti Fellsenda, Brákarhlíð og Silfurtún og eyddum deginum með sjúkraliðum og yfirmönnum og fengum góða innsýn í þeirra starfsemi.

Upplýsingar um deildina:

Svæðisdeild Vesturlands liggur frá Hvalfjarðarbotni að sunnan að Barðaströnd að norðan.
Deildin var stofnuð 4. nóvember 1991.

Fjöldi félagsmanna í deildinni:
Samkvæmt félagaskrá SLFÍ eins og hún reyndist
2025 voru félagsmenn deildarinnar 174.

Fyrir hönd Svæðisdeildar Vesturlands,
Kristrún Kristinsdóttir