Um félagið
Sjúkraliðafélag Íslands var stofnað sem fagfélag árið 1966 og hefur starfað sem stéttarfélag frá árinu 1991.
Hlutverk félagsins er að efla samstöðu sjúkraliða og gæta hagsmuna stéttarinnar á öllum sviðum. Félagið vinnur að því að styrkja faglega stöðu sjúkraliða í heilbrigðisþjónustunni, verja réttindi þeirra og skapa skilyrði fyrir þróun, framgangi og faglegum vexti.

Sjúkraliðar eru ein fjölmennasta fagstétt heilbrigðisþjónustunnar og gegna lykilhlutverki í daglegri umönnun, hjúkrun og stuðningi við fólk á öllum aldri. Starf þeirra fer fram á sjúkrahúsum, hjúkrunarheimilum, í heimahjúkrun, í félagsþjónustu og víðar, oft við krefjandi aðstæður þar sem ábyrgð, fagþekking og mannleg samskipti fara saman. Sjúkraliðar eru burðarstoð þjónustunnar og ómissandi þáttur í öryggi, gæðum og samfellu heilbrigðiskerfisins.
Hlutverk Sjúkraliðafélags Íslands er að gæta réttinda sjúkraliða og vinna að því að menntun, hæfni og ábyrgð þeirra njóti viðurkenningar í starfslýsingum, launakerfum og skipulagi þjónustunnar.
Félagið semur kjarasamninga og fylgir þeim eftir, veitir félagsmönnum ráðgjöf og stuðning í kjaramálum, vinnurétti og ágreiningsmálum, vinnur að eflingu fagsins og faglegri þróun sjúkraliða, tekur þátt í stefnumótun og opinberri umræðu um heilbrigðis- og velferðarmál, og stendur vörð um gæði þjónustu og öryggi skjólstæðinga.
Félagið starfar í samstarfi við önnur stéttarfélög, BSRB – heildarsamtök opinberra starfsmanna, stjórnvöld, stofnanir og vinnuveitendur, bæði innanlands og á alþjóðavettvangi.
Sjúkraliðar og fagleg þróun
Menntun sjúkraliða hefur þróast og eflst á undanförnum árum, meðal annars með eflingu sjúkraliðanámsins, símenntun hjá Framvegis - miðstöð símenntunar, og sérhæfðu viðbótarnámi við Háskólann á Akureyri. Þessi þróun kallar á skýrari verkaskiptingu, aukna ábyrgð og raunverulega viðurkenningu í daglegu starfi.
Sjúkraliðafélag Íslands vinnur markvisst að því að þessi faglega þróun skili sér í raunverulegum breytingum á vinnustöðum, í starfslýsingum, stofnanasamningum, og í mönnun og skipulagi þjónustunnar. Markmiðið er að tryggja að þekking sjúkraliða nýtist til fulls, bæði til hagsbóta fyrir starfsfólk og fyrir þá sem þjónustunnar njóta.
Félagsmenn og þjónusta
Sjúkraliðafélag Íslands er félag félagsmanna sinna. Starfsemin byggir á lýðræðislegu skipulagi, virkri þátttöku félagsmanna og öflugri starfsemi svæðisdeilda og trúnaðarmanna.
Félagið veitir meðal annars ráðgjöf í kjaramálum og vinnurétti, aðstoð í samskiptum við vinnuveitendur, stuðning við trúnaðarmenn, fræðslu og upplýsingagjöf, og tekur þátt í stefnumótun og hagsmunagæslu.
Starf Sjúkraliðafélags Íslands byggir á skýrum gildum:
- Ábyrgð – gagnvart félagsmönnum, faginu og samfélaginu
- Alúð – í samskiptum, umönnun og hagsmunagæslu
- Umhyggja – fyrir fólki, starfsumhverfi og framtíð heilbrigðisþjónustunnar
Sjúkraliðafélag Íslands er ekki eingöngu stéttarfélag, heldur einnig fagfélag sem tekur virkan þátt í samfélagslegri umræðu um velferð, heilbrigðisþjónustu og mannréttindum. Félagið beitir sér fyrir lausnum sem styrkja kerfið til lengri tíma, og tryggja að þjónustan byggist á fagmennsku, virðingu og trausti.